miðvikudagur, desember 13, 2006

Hrikalegt ástand!

Eins og þið sennilega vitið er fjöldamorðingi laus í Ipswich, UK. Hann hefur myrt að minnsta kosti 3 vændiskonur og verið er að rannsaka tvö önnur morð á vændiskonum sem að öllum líkindum voru framin af sama aðila. Þar að auki er tveggja annarra vændiskvenna saknað. Ég var að horfa á nokkur video með þessari frétt og fannst ofboðslega sorglegt að horfa á þetta video. Þar er viðtal við vinkonu tveggja þessara kvenna sem einnig er vændiskona. Hún er greinilega hrædd, sár, dópuð og bara yfir höfuð í mjög annarlegu ástandi en heldur samt áfram að stunda sína "vinnu" til þess að fjármagna dópneyslu. Mér finnst bara ótrúlegt að það séu til karlmenn sem eru að kaupa sér þjónustu hennar og yfir höfuð þjónustu vændiskvenna. Þetta er misnotkun og ekkert annað. Ég vildi að hægt væri að yfirfæra alla þá fordóma sem ríkja í garð vændiskvenna yfir á þá aðila sem eru að kaupa sér þjónustu þeirra! Kveðja, Salóme

|

þriðjudagur, október 03, 2006

4 dagar í keppnina!!

Vá hvað ég er farin að hlakka til!!
Kvíði eiginlega ekkert fyrir keppninni þar sem ég er komin með ágæta tíma í báðum greinunum! Æfingatímarnir mínir eru mjög svipaðir bestu tímunum í síðustu keppni og mér finnst það bara mjög gott þar sem ég hafði svo lítinn tíma til að undirbúa mig! :D Vona að ég geri betur í keppninni þar sem ég verð full af orku og með nokkrar manneskjur öskrandi á mig!! Hinar stelpurnar í liðinu eru líka að gera rosalega góða hluti! Þvílíkt öflugar og duglegar stelpur sem leggja sig allar í þetta :)

Kveðja Kristín Arna

|

þriðjudagur, september 26, 2006

Æfingar æfingar æfingar...

Já ég veit.. blogga bara um æfingar núna..
En svona er þetta.. hugsa svo mikið um þessa keppni núna að ég funkera varla.. Fór á BC æfingu áðan, ákvað að mæta hálftíma fyrir tímann til að ná að hita upp og taka nokkrar vel valdar æfingar þannig að ég var alveg byrjuð að svitna þegar bootcamp æfingin byrjaði.. og ég er ekki frá því að ég hafi bara verið alveg búin á því eftir þessa æfingu. Við hituðum vel upp með áttum, jumping jacks, armbeygjum, situps, hlaupi, hnélyftum, hælum í rass, sippi og svo framvegis og svo var okkur sagt að fara fram á gang með 5 kg bolta, nema Kristín og Siggi taka tvö 5 kg handlóð (vei.. helmingi þyngra) en o jæja.. það er svo sem í góðu.. fórum fram á gang í nítíu gráður og gerðum axlapressur, curls og eitthvað fleira og svo voru það hlaup í stiganum. Okkur var skipt í þrjá hópa og ég var svo heppin að ég fékk að hlaupa með fyrsta hópnum og síðasta hópnum.. 3 ferðir upp og niður á undir 40 sek fyrst, svo var það lækkað niður í 35 sek eftir nokkrar ferðir.. svo var það hagkaupshringurinn góði á undir 2 mín.. svo bara rólegar magaæfingar í restina... Mjög skemmtileg og krefjandi æfing..
Evert (þjálfari) bauð mér að koma með þeim þjálfurunum á æfingu eftir þetta allt.. og ég var ekki lengi að afþakka þetta góða boð.. en ég hafði bara engan kraft í að fara að hlaupa og taka brekkuspretti með þessum yndislegu geðsjúklingum.. :D En jæja.. það er alveg að fara að koma að næstu æfingu.. og vá hvað ég vona að kreatínið sem Jakob ætlar að selja mér muni virka því þessar fótalyftur eru bara alls ekkert svo auðveldar.. :/ En ég hef 11 daga til að mastera þær ;)
Kv. Kristín æfingasjúka..

|

miðvikudagur, september 20, 2006

Undirbúningur kominn á fullt!!

Já undirbúningurinn fyrir þrekmeistarann er sko heldur betur kominn í gang! Prógrammið er búið að vera ágætlega stíft þessa vikuna.
Mánud: 7:00-8:00 - BootcAmp æfing, 12:00-13:00 - BootcAmp æfing, 20:00-21:00 þrekmeistaraæfing.
Þriðjud: 8:00-9:30 - Lyfta í þrekhúsinu, 12:00-13:00 - BootcAmp æfing
Miðvikud: 16:30-19:00 - Lyfta og allskonar uppí BootcAmp
Á morgun fer ég svo í fyrramálið uppí sporthús er að spá í að hlaupa og lyfta með tví- og þríhöfða! Ofsalega spennandi.. fer svo líklegast aftur seinnipartinn og geri eitthvað skemmtilegt!! :D
Annars er ég mjög ánægð með liðið mitt! Alveg frábærar stelpur allar saman! Erum að spá í að leigja okkur bústað á Akureyri þannig við verðum með heitann pott og svona skemmtilegt!!
Kv. Kristín Arna

|

sunnudagur, september 17, 2006

3 vikur!!!!

Fyrir svona mánuði var ég að spá í að taka þátt í þrekmeistaranum með 3 öðrum stelpum, vantaði s.s eina til að fá fullskipað lið. En tvær af þessum stelpum hættu svo við þannig ég og Lilja vorum einar eftir og fundum engar til að fylla uppí liðið þannig við hættum bara við þetta :(
En! Mér var bent á þetta blogg og Sósunum vantar akkurat tvær stelpur til að koma í staðin fyrir tvær sem eru búnar að slasa sig (ömurlegt því þær eru búnar að vera rooosalega duglegar að æfa...). Ég var ekki lengi að bjóða mig fram! Fyrst ætlaði ég að taka að mér armbeygjur ( 30x) og kassauppstig (100x með 5 kg) en ætli ég endi ekki á niðurtogi (50x með 25 kg) og fótalyftum(60x) sem ég held að séu líka frekar mínar æfingar þar sem ég er með frekar sterkt bak eftir múrverkið og alveg ágætlega sterkan maga.. En váá hvað ég verð að vera dugleg að æfa fyrir þetta.. bara 3 vikur í keppni!!!
En planið er að hitta skvísurnar annað kvöld og taka æfingu! Verð örugglega ekki uppá mitt besta þar sem ég fer á BootcAmp æfingu kl. 6:30 og 12:00... En það verður bara gaman :D
Voðalega er ég búin að flakka á milli greina í þessum þrekmeistara! Til að byrja með ætlaði ég að sjá um að hlaupa og taka bekkpressuna.. úr því fór ég í armbeygjur og uppstig og þaðan í niðurtog og fótalyftur... vona að ég endi í því líka bara :D

Kveðja Kristín Arna

|

þriðjudagur, september 12, 2006

IQ - test

Ég googlaði IQ test í gær og fann þessa síðu http://www.intelligencetest.com/ og prufaði að taka prófið þar. Mæli með því, þetta tekur ekki nema 10 mín og alltaf gaman að smá hugarleikfimi! Passið bara að vera fljót að svara því þetta er frekar tæpur tími!

Niðurstöðurnar mínar:

Hello Kristín Arna

Your age adjusted IQ score is 132 and the average score is 100.

Your IQ score is the result of a formula based on the number of
questions answered correctly on the test. This score has been further
adjusted to account for the differences in capabilities among various
age groups. Your percentile score means that you scored higher than 99%
of the people who took this same test.


Your Grade:Gifted


Anyone with a general IQ this high is considered to be gifted. You have the ability to think critically, conceptualize ideas and form your own conclusions. Your ability to think in patterns and to produce order out of chaos enables you to handle complexities and see logic in everything. Needless to say you are self-aware of your abilities and have the brains for all known occupations. If you think of intelligence as the ability to adapt easily to new situations then you are at the top of the charts.



General statistics


Total number of questions:30
Questions answered:30
Questions not answered:0
Questions answered correctly:27
Questions answered incorrectly:3
Percentage correct answers:90%


Jaháá.. ég er bara svona helv.. gáfuð!!
ho ho ho ho...


ákvað að prufa annað próf á http://web.tickle.com/tests/uiq/index_main.jsp og skoraði aðeins lægra þar :/ en þetta kom útúr því :

Congratulations, Kristín!
Your IQ score is 129
This number is based on a scientific formula that compares how many questions you answered correctly on the Classic IQ Test relative to others.

Your Intellectual Type is Visual Mathematician. This means you are gifted at spotting patterns — both in pictures and in numbers. These talents combined with your overall high intelligence make you good at understanding the big picture, which is why people trust your instincts and turn to you for direction — especially in the workplace. And that's just some of what we know about you from your test results.

Hvað náið þið háu skori???

kv. Kristín

|

mánudagur, september 11, 2006

allskonar!!

Vitiði hvað vitiði hvað!! Sumarbústaðurinn er alveg að verða tilbúinn!!
Fór með pabba á laugardaginn kl 8:00 uppí sumó og við náðum að leggja í gólfið og næstu helgi er planið að klára að einangra veggina og flota gólfið! Þá er bara eftir að setja gler í gluggana, rappa og pússa veggina og svo mála kannski setja upp veggi inni og hurðar líka og svoleiðis smáatriði.. En það styttist í að þetta verði allt saman tilbúið :D
Annars kíkti ég smá út á lífið með Ernu, Leif og Vigni á laugardagskvöldinu! fékk mér smá í glas og viti menn.. ég er að spá í að sleppa því bara að drekka hér framvegis! Drakk alls ekki mikið en samt fann ég vel fyrir því á æfingu áðan! Held ég hafi haft svona 60% af styrknum mínum og þolinu! og það er ömurlegt. Ekkert gaman að æfa þegar maður stendur sig ekki vel! Annars er ég að fá mér kort eftir nokkra daga í ISF!! hlakka svo til að geta æft almennilega! (æfi alveg almennilega í bootcamp en langar að gera meira með því)...
Svo er þrekmeistarinn eftir mánuð núna og helmingurinn af liðinu mínu hætt við að taka þátt þannig það verður ekkert úr þessu hjá mér! :( buhuu... Annars var verið að segja mér í dag á æfingu að taka bara þátt í einstaklingskeppninni því ég færi létt með það.. veit ekki alveg hvort ég færi létt með það en það væri gaman að prufa að rúlla í gegnum æfingarnar allar bráðum og sjá hvort þetta sé eitthvað sem væri hægt að skoða!! Ef ég geri það ekki þá tek ég þátt í einstaklingskeppninni í apríl!! og byrja bara að æfa fyrir það strax þannig ég standi mig nú vel!
Kv. Kristín Arna

|